Hvítlauksmauk er hægt að nota í marga hluti. Í marineringar, í hvítlauksbrauð og í indverska rétti svo fáein dæmi séu tekin. Þetta er einföld útgáfa af mauki sem tekur einungis fáeinar mínútur að búa til.
10 hvítlauksgeirar
1 msk. ólívuolía
1 msk. hvítvínsedik
Setjið allt ofan í matvinnusvél og mixið. Persónulega set ég ólívuolíuna í smáum skömmtum ofan í þangað til réttri þykkt er náð. Hvítvínsedikið eykur geymsluþol mauksins þannig að það geymist í nokkrar vikur í kæli en það má einnig frysta í litlum skömmtum. Til dæmis í klakaboxi en þá er mjög auðvelt að sækja lítinn skammt hverju sinni sem nota á maukið.
Pingback: Saffran hrísgrjón | Eldhúsdagbækur Ólafs Nielsen