Safaríkt nautakjöt með bökuðum kartöflum og béarnaise sósu

Þegar ég hugsa um fínan mat er nautakjöt og béarnaise sósa skammt undan. Þetta er réttur sem allir eiga að mastera og hann er ekki flókinn en krefst smá umhyggju.

Byrjið á því að undirbúa bökuðu kartöflurnar, þær taka lengstan tíma. Setjið nautalund eða nautafillet í skál og ögn af matarolíu. Kryddið mjög vel með nýmuldum svörtum pipar og rífið ferskar rósmarín greinar ofan í. Látið kjötið liggja í þessari maríneringu þangað til það hefur náð stofuhita en það er betra að steikja það þannig.

Hitið pönnu mjög vel og setjið 1 msk. af ólívuolíu og væna klípu af smjöri út á hana. Skerið heilan hvítlauk (allt búntið) í tvennt og setjið á pönnuna þannig að sárið snúi niður. Við ætlum aðeins að loka kjötinu (brúna) á pönnunni og klára svo að elda það í ofni. Þetta tekur einungis fáeinar mínútur.

Hitið ofninn 150°C og setjið kjötið inn í hann í eldföstu móti. Stingið kjöthitamæli inn í miðjan vöðvann og eldið þar til kjötið hefur náð 56°C í kjarnhita (rare) eða 60°C (medium) eftir smekk. Ef þú átt ekki kjöthitamæli farðu þá og keyptu þér hann. Það er súrt að klúðra steik sem þú hefur keypt fyrir nokkur þúsund krónur bara vegna þess að þú áttir ekki kjöthitamæli. Ég keypti mér stafrænan kjöthitamæli með langri snúru og með hann að vopni er ekki hægt að klúðra steikingu á kjöti.

Þegar kjötið hefur náð tilætluðum kjarnhita er það tekið út úr ofninum og vafið inn í álpappír og látið standa í a.m.k. 15-20 mín. Þetta á í raun við um allt kjöt því kjötsafinn þarf að dreifa sér aftur um kjötið og setjast eftir að eldun hefur átt sér stað. Ef þú skerð í kjöt um leið og það kemur úr eldun lekur kjötsafinn út og steikin verður ekki eins safarík. Ég tárast þegar ég sé fólk skera í góða steik meðan hún er enn á grillinu til þess að athuga hvort hún sé tilbúin.

Meðan kjötið er að jafna sig er béarnaise sósan útbúin. Berið svo að lokum fram með bökuðum kartöflum og góðu rauðvíni.

Það er ekki erfitt að klára steik sem þessa með góðu rauðvíni og béarnaise sósu. Rioja er í miklu uppáhaldi hjá mér þegar kemur að nautakjöti og mæli ég t.d. með Campo Viejo Reserva eða Baron de Ley Reserva.

This entry was posted in Aðalréttir, Nautakjöt. Bookmark the permalink.

3 Responses to Safaríkt nautakjöt með bökuðum kartöflum og béarnaise sósu

  1. Gummi says:

    Haha! Sé þig fyrir mér með tárin í augunum – og þó ég sé mjög sammála sker ég alltof alltof oft í kjötið… Stafrænn mælir kominn á innkaupalistann.

    Bíð spenntur eftir fleiri færslum, og gæti jafnvel hjálpað til með það ef þú vilt ;)

  2. Brynja Björk says:

    Campo Viejo er uppáhalds rauðvínið mitt – sérstaklega með nautasteik. Gran Reserva er best.

  3. olafurnielsen says:

    Já, Campo Viejo er líka í uppáhaldi hjá mér og Rioja vín reyndar almennt og þessi steik hefði vel mátt vera borin fram með gran reserva. Hitt vínið, Baron de Ley, er einmitt frá Rioja líka og get ég vottað að bæði eru frábær með nautakjöti.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>