Kjúklingasoð er notað í fjölmargt og það er ekkert mál að búa það til. Yfirleitt kaupi ég kjúklinga í heilu, hluta þá niður og frysti þá parta sem ég nota ekki. Afganginn er tilvalið að nota til að búa til kjúklingasoð. Soðið má nota í súpur, risotto og sósur svo fáein dæmi séu tekin og gefur mun ferskara bragð en hinir söltu teningar.
Innihald
Afskurður af einum kjúklingi
Mirepoix; 2 laukar, 1 stór gulrót, 2 sellerístilkar
2 lárviðarlauf
Kryddið með nokkrum svörtum piparkornum og dassi af timían
Skerið alla fitu burt af kjúklingnum og skerið grænmetið gróflega niður. Setjið allt hráefnið í stóran pott og hellið 2-3 l af köldu vatni eða þannig að það fljóti ágætlega yfir kjúklinginn. Náið upp suðu og lækkið svo undir og látið malla í 2 klukkustundir eða þangað til að soðið hefur minnkað um ca. helming.
Látið kólna líttilega í pottinum og fleytið fitunni ofan af. Takið svo allt innihaldið og sigtið soðið frá. Smakkið til með smá salti. Stundum bæti ég einhverju grænmeti og kryddum við eftir því hvað ég ætla að nota soðið í… ef þér finnst eitthvað gott þá er bara í góðu lagi að bæta því ofan í pottinn.

Pingback: Saffran hrísgrjón | Eldhúsdagbækur Ólafs Nielsen