Það er alltof lítið gert af því að krydda hrísgrjón og flestir láta sér nægja að borða þau bara eins og þau eru; bragðlítil og einföld. Þegar maður kemst upp á lagið með að krydda hrísgrjónin er ekki aftur snúið. Allt í einu er þetta hlutlausa meðlæti orðið algjörlega frábært. Saffran hrísgrjón eru afskaplega vinsæl í þessari deild. Þau eru virkilega elegant og henta auðvitað frábærlega með indverskum mat.
Innihald
8 dl. kjúklingasoð (eða vatn og teningur en þá má sleppa saltinu)
5 dl. hrísgrjón
1 tsk. túrmeric
2 heilar kardimommur
Nokkrir saffran þræðir
1 tsk. hvítlauksmauk eða 1 hvítlauksgeiri pressaður
1 tsk. salt
Safi úr hálfri sítrónu
Setjið allt nema hrísgrjónin í pott og náið upp suðu. Þegar suðan er komin upp bætið hrísgrjónunum þá ofan í heitt vatnið og lækkið undir. Leyfið að malla með loki á pottinum þangað til vatnið er að mestu uppurið, slökkvið þá undir og hafið lokið áfram á pottinum. Það er gott að miða við að slökkva undir þegar þú sérð að það eru farin að myndast göt á hrísgrjónununm í pottinum. Svo klárast grjónin að eldast í þeim hita og gufu sem er í pottinum. Það er því gott að gera grjónin áður eða á meðan matseldinni stendur. Uppskriftina fékk ég upphaflega einhvers staðar af netinu en hef síðan breytt henni umtalsvert.

