Heilsu mangó lassi

Mangó lassi er klassískur indverskur drykkur sem er virkilega gott að drekka með bragðsterkum indverskum mat. Hin hefðbundna uppskrift inniheldur sykur en mér fannst engin ástæða til að bæta honum út í  - drykkurinn stendur fyrir sínu án hans. Þetta er góð og kaloríusnauð útgáfa af drykknum. Bætti einnig engifer við, sem er ekki að finna í flestum uppskriftum, einfaldlega vegna þess að engifer er gott gegn hinum ýmsu kvillum auk þess sem það er mjög gott á bragðið.

Innihald

1 mangó, flisjað og skorið í litla bita
1,5 dl undanrenna
2 dl létt AB mjólk
1 msk engifer, flisjað
muldir klakar

Gott er að byrja á því að setja undanrennuna út í ásamt öllu hinu og þykkja svo með AB mjólkinni í lokin þar til þér finnst þú vera með réttu þykktina. Bætið nokkrum klökum út í og drekkið.

This entry was posted in Indverskt. Bookmark the permalink.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>