Ofan á pizzu, í hvítlaukssteikta sveppi, nautasteik, sósur, penslað á naan brauð… það er hægt að nota þessa olíu í nánast allt og ef þig vantar pressaðan hvítlauk á 1 mínútu í matargerðinni er auðvelt að ná í hann ofan í krukkuna.

6 pressaðir hvítlauksgeirar
2-3 dl. olía (vínberjasteinsolía eða e-r bragðmild grænmetisolía. Ekki ólívuolía.)
1 msk. þurrkuð steinselja
1 tsk. salt
Öllu er blandað saman í krukku. Olían verður betri eftir því sem hún fær að liggja lengur. Geymist vel í kæli í margar vikur. Það getur verið gott að setja meira af hvítlauk en þá er hægt að bæta olíu í krukkuna a.m.k. einu sinni.
Það er fátt betra en að gæða sér á nýbökuðum rúnstykkjum meðan sunnudagsmogginn er lesinn. Ég kalla þetta rúnstykki því ég vil hafa þau stór!

8dl. hveiti
3 tsk. þurrger
1 tsk. sykur
1 tsk. salt
2 msk. matarolía
240 ml volgt vatn
Leysið gerið upp í um 40°C heitu vatni og bætið sykringum út í til að hleypa gerinu öllu af stað. Setjið öll hin efnin í skál og bætið að lokum gerblöndunni út í eftir 10-15 mínútur.
Það er betra að nota eins lítið hveiti og mögulegt er. Bollurnar verða mýkri, ekki eins þurrar og geymast betur þannig.
Látið deigið hefast í skál í heitu vatnsbaði í 45 mínútur með viskastykki breiddu yfir skálina. Hitið ofninn í 250°C og hnoðið 6 rúnstykki úr deiginu. Bakist í 12-15 mínútur í miðjum ofni.
Það má pensla rúnstykkin með hrærðu eggi og þá er tilvalið að strá yfir þær t.d. birkifræjum eða sólblómafræjum.
Þessa uppskrift þróaði ég yfir heimsmeistarkeppninni í fótbolta 2010. Ég er mikill hot wings aðdáandi og vildi ná ámóta vængjum og boðið er upp á hjá Ruby Tuesday og Domino’s.

1 bakki kjúklingakjuðar
Marinering
2 tsk. paprika
1 tsk. chilliduft
1 tsk. cayenne
1 msk worchester sósa
ágætis dass af Frank’s buffalo hot wings sósu (fæst í Melabúðinni)
Safi úr hálfri sítrónu
Smávegis af sætri BBQ sósu (má sleppa)
Salt og pipar
Athugið að þetta eru hot wings og ef þið viljið hafa þá mildari takið einfaldlega cayenne duftið úr jöfnunni og minnkið chiliduftið ef þið eruð algjörar kellingar.
Marinerið kjúklingavængina í 1 klst. og forhitið ofninn í 200 °C. Raðið vængjunum á ofnggrind og setið inn í ofninn. Setið ofnskúffu undir grindina og fyllið hana af vatni. Þetta trikk lærði ég af bróður mínum þegar ég heimsótti hann til Svíþjóðar í vor. Ef vængirnir eru að ofeldast að utan má spreija vatni yfir þá. Snúið vængjunum þegar þeir verða brúnir á annari hliðinni og eldið samtals í 40-50 mínútur eða þar til vængirnir eru hæfilega brúnir að utan.
Takið út og veltið upp úr Frank’s buffalo hot wings sósu. Fyrir mér er það hot wings sósan sem gerir vængina. Hún skiptir öllu máli og ég fann góðan félaga minn í Frank’s sósunni.
Berið fram með gráðostasósu.
Innihald
Helmingur sýrður rjómi og helmingur mæjó
Gráðostur eftir smekk
Smá BBQ sósa, púðursykur eða e-ð sem gefur sætu
Salt og pipar
Hrærið öllu saman með töfrasprota. Gott er að búa sósuna til deginum áður og láta standa í ísskáp. Þá dreifist gráðosturinn betur um sósuna.
Ef þið eruð orðin þreytt á þungum mat eða langar bara í eitthvað létt og sumarlegt eru túnfisksteikur allrar athygli verðar. Ég eldaði réttinn fyrst á þorláksmessu þegar ég var kominn með upp í kok af hefðbundnum mat jólaboðanna og vantaði eitthvað létt sem hafði þó einhvern sjarma yfir sér.

Innihald
Túnfisksteik (fæst í öllum betri fiskbúðum en einnig frosnar í Bónus)
1 meðalstór rauðlaukur per steik
Smjör til steikingar
Svartur pipar
Maldon salt
Skerið mikið af rauðlauk og mýkið í íslensku smjöri. Kryddið túnfisksteikurnar vel með svörtum pipar og steikið í rétt rúmlega 1 mín. á hvorri hlið upp úr smjöri við tiltölulega háan hita. Snúið við og stráið smá Maldon salti yfir.
Berið fram með hvítlaukssósu og réttinn má svo kóróna með nokkrum salatblöðum sem hafa fengið skvettu af ólívuolíu og salti yfir sig. Hér er einfaldleikinn í fyrirrúmi og það þarf ekkert meira á diskinn —túnfiskurinn stendur fyrir sínu.
Borðið svo með góðu hvítvíni en Montes Alpha Chardonnay smellpassar t.d. með þessum rétti.
Hvítlaukssósa
Sýrður rjómi
Pressaður hvítlaukur eftir smekk
1/2 tsk. Maldon salt
1/2 tsk. Svartur pipar
Á tyllidögum má skipta helmingnum af sýrða rjómanum út fyrir majónes. Þá getur verið gott að setja smá sítrónusafa út í til að fá sýru og gera sósuna léttari.